Veldu versta lagið!

Það bárust heldur færri tilnefningar í vondu laga keppnina en ég hafði vonast til. En kannski það sýni bara hversu góðan smekk á tónlist við höfum öll. Við eigum hreinlega í vandræðum með að velja vond lög. Munum þau hreinlega ekki. Eða ekki nöfn á þeim. Svo ég ákvað að bæta nokkrum við. Svona til þess að þetta yrði ekki of jafnt. Ákvað að velja þau fyrir hönd þeirra sem sendu inn tilnefningar, svo loforðið um léttvínsflösku og blandaðan geisladisk með góðri tónlist til þess sem útnefndi versta lagið stendur. Jafnvel þó það hafi hugsanlega komið frá mér. Það er þá tengt einhverjum af þeim sem sendu inn tilnefningar. Lögin sem voru útnefnd eru þó að mínum dómi öll sérlega vond. Þau lög sem ég fann tengla á – þau getið þið hlustað á – og jafnvel horft á ógleymanleg myndbönd. Önnur þekkið þið væntanlega.

Anna Vilhjálms – Fráskilin að vestan
Árni Jónsen – Í Þykkvabænum
Aqua – Barbie Girl
Ace of Base – All That She Wants
Armi and Danni – I Want To Love You Tender
Black Eyed Peas – My Humps
The Cheeky Girls – The Cheeky Girls (Touch My Bum)
Leonard Nimoy - Ballad of Bilbo Baggins
Los del Rio - Macarena
William Shatner – Lucy In The Sky With Diamonds


Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvaða hvaða ... macarena ekki vont lag ekki besta lag í heimi heldur en samt..annað er ég sátt við.Ég er alveg sammála þér með að maður bara man ekki þessi hræðilegu en ég man samt alveg að hafa kveikt á útvarpinu og vildi óska að ég hafi ekki gert það. c'est la vie
Nafnlaus sagði…
kva! bara verið að leggja Star Trek fólk í einelti???

Leonard Nimoy (Mr. Spock) OG Shatner (Cpt. Kirk)

sammála flestu þarna annars...
Simmi sagði…
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Simmi sagði…
Ég myndi nú ekki draga neinar aðrar ályktanir af þessu, en að þeir hefðu betur haldið sig eingöngu við leikinn...:-)
Nafnlaus sagði…
Haha, þetta eru æðisleg lög, öll með tölu. Erfitt að gera upp á milli.

En ég er raunar stórhrifinn af tónlistartilraunum Leonard Nimoy og William Shatner. Mæli með að þið leitið að "Tambourine man" með William shatner, það er baaara flott.
Nafnlaus sagði…
Ég vel fráskilin að vestan.

Það er skelfilegt lag!

-Anna

Vinsælar færslur