Skemmtilegar heimsóknir

Ég veit ekki hvað það er sem veldur. En þetta svæði hefur aldrei orðið sérlega vinsæll vettvangur fyrir aðra til að tjá sig. Þeir fáu sem hafa þorað að tjá sig hafa fljótlega gefist upp. Líklega ekki talið það þess virði. Eða bara fundist það sem ég er að skrifa um svo svakalega leiðinlegt. Í það minnsta finnst mér ástæða til þess að hvetja þá sem hingað líta inn til þess að skilja eftir kveðju.

Það er raunar afskaplega einfalt. Má meira að segja gera nafnlaust. Sá sem þetta skrifar hefur síðan alveg svakalega gaman af því að fá kveðjur. Meira að segja þessar nafnlausu. Ég hef það fyrir sið að lesa þær. Svara ef svo ber undir. Yfirleit án þess að vera með leiðindi út í þá sem skrifa kveðjur.

Mér finnst nefnilega skemmtilegt að eiga lesendur. Ennþá skemmtilegra finnst mér að eiga lifandi lesendur. Held nefnilega að hluti af þeim sem hingað koma séu ekki lifandi. Heldur hugbúnaður sem framleiðendur leitarvéla hafa smíðað í þeim tilgangi að lesa yfir það sem ég skrifa. Sem mér finnst líka skemmtilegt.

Annars er ég á kafi í því að reyna skilja CSS þessa dagana. Það gengur svona upp og ofan. Ekkert rosalega vel ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Held að þreyttur og aldraður heili minni eigi í einhverjum erfiðleikum með að ná þessu. En ég er ekkert á því að gefast upp. Það er bara ekki minn stíl.

En ég fékk skemmtilegan pakka í dag. Nýjustu myndina í rússneskum þríleik. Hlakka til að horfa á. Rússneskt kvikmyndakvöld framundan.

Ummæli

Blinda sagði…
Já fólk svona - skilja eftir kveðju í lok heimsóknar!

Ég kíki hingað alltaf og les pistlana þína Simmi, en það verður eitthvað svo krípí þegar að það er alltaf bara ein manneskja sem kvittar - en ég skal gera það samt í von um að fleiri bætist við :-)

Yfir og út.
Simmi sagði…
Já, nákvæmlega - ég skil að fólk nenni ekki að vera á eintali hér. Það er ekkert stuð:-)
Nafnlaus sagði…
ég kíkji lika hingað á hverjum degi,mbl,simmi.....
Nafnlaus sagði…
hei - ég kíki hér reglulega í heimsókn og skil nú af og til eftir kveðju...

hér er ein til: KÆR KVEÐJA TIL SIMMA:)
Nafnlaus sagði…
Ég er auðvitað daglegur gestur, en er hinsvegar alræmdur fyrir leti mína við tjáskiptin. Lofa bót og betrun.

Já, og LIFI SIMMI!
Simmi sagði…
þetta líkar mér - það koma gestir í ljós og þeir segja mér eitthvað skemmtilegt og óska mér meira að segja langlífis....já - nú þarf ég bara að finna fleiri svona skemmtilegar aðferðir til að fá fólk til að segja mér eitthvað skemmtilegt:-) En ég þakka kærlega fyrir mjög góðar kveðjur - takk, takk og þið lengi lifið:-)
Nafnlaus sagði…
Spurning um að reyna kannski að halda CSS-kvöld á næstunni? Veit um fleira fólk sem er að feta sig áfram og það væri nú ekki amalegt að hittast yfir rauðvínskaröflu og fartölvum.
Nafnlaus sagði…
helv. líst mér vel á hugmynd huga...

veit reyndar ekkert hvað CSS er, er það eitthvað svipað og CSI?
Simmi sagði…
Já, Hugi þetta er ekki vond hugmynd með CSS kvöldið. Held við ættum að reyna að setja það upp - veit ekki hvað fólki finnst um Hansabæinn sem staðsetningu á slíku kvöldi, en það er til eitthvað af rauðvíni þar:-)

Baun þú verður hrygg að komast að því að CSS á ekkert skilt við CSI - þetta er sem sagt nördafest með rauðvínsívafi:-)
Nafnlaus sagði…
nördafest er eitthvað við mitt hæfi, nema þetta snúist eingöngu um tölvur...

er það svo?
Nafnlaus sagði…
dude, mæti alltaf þegar ég á lausa stund. En þeim hefur farið fækkandi síðan í desember.
Nafnlaus sagði…
Þá er það ákveðið. Spurning um að smala bara saman góðum hóp. Mætti jafnvel gera fólki kleift að skrá sig hjá SVEF, þrír til fjórir í einu :-).

Við höldum svo sérstök CSI-kvöld fyrir baun, er það ekki :-). Eða Trek-kvöld. Óóójá.

Vinsælar færslur