Góður hádegismatur

Ég kom sjálfum mér á óvart í hádeginu. Langaði ekki í það sem mötuneytið mitt bauð upp á. Finnst það stundum vera einsleitur matseðil. Svo ég fór og ætlaði bara á Búluna. Sést hvað ég hef stundum lítið hugmyndaflug. En þegar ég var að leggja þá rak ég allt í einu augun í Sushi stað. Sem ég hafði reyndar tekið eftir áður en hreint ekki munað eftir. Midori sushi smiðja er þarna rétt fyrir neðan. Náði mér í sushi og sá ekki eftir því. Ferlega skemmtilegt þegar maður kemur sjálfum sér svona á óvart. Svo er þetta líka svo holt.

Það sem mér finnst samt skemmtilegast af öllu er að sushi táknar raunverulega hrísgrjónarétt í Japan. Það er sem sagt miskilningur að halda að þetta séu fisk réttir. Því þetta getur innihaldið hvað sem er. Raunar er ekki svo langt síðan ég byrjaði að borða sushi. Reyndi það fram eftir öllum aldri. Fannst þetta aldrei neitt nema vont. Endaði svo á stað í Annapolis fyrir nokkrum árum síðan þar sem ég náði þessu loksins. Fékk svona líka svakalega gott sushi. Staðurinn heitir Yin Yankee og ég veit svo sem ekki hvort hann er enn jafn góður. Ef þú átt leið um þetta svæði þá mæli ég alveg með heimsókn til Annapolis. Fullt af góðum matsölustöðum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
ég hjólaði þarna framhjá um daginn og fékk mér fiskisúpu hjá Sægreifanum, hún var fín...

- var einmitt að hugsa hvað það væri gaman að hafa fullt af svona litlum sætum matsölustöðum þarna niðri við höfn, gera upp þessi gömlu hús í staðinn fyrir að rífa allt niður og byggja einhvern óskapnað
Barbie Clinton sagði…
Hollt?? Hringormar komandi upp úr koki á fólki, út úr sárum etc... Allt rakið þil sushi neyslu. Hvað er líka svona gott við hráan þorsk sem er vafinn´inn í smá þara með köldum hrísgrjónum? Ohhh, langar á Búlluna.
Simmi sagði…
Sushi er nú ekki bara hrár fiskur - raunar einfalt að gæða sér á sushi án þess að koma nálægt fiski;-) En það tók mig líka nokkur ár að finnast þetta gott...

Vinsælar færslur