Á ferð - dagur 1

Ferðalagið hófst á símtali. Eldsnemma í morgunn. Eiginlega alltof snemma. Það var ferðafélaginn. Veit ekki alveg um hvað símtalið snérist. Enda ekki nema tæplega 3 tímar frá því ég festi svefn. Þangað til símtalið barst. En ég vaknaði í tíma. Skömmu seinna var ferðafélaginn mættur. Við höfðum nefnilega ákveðið að fara bara á fólksbíl. Höfðum skoðað málið. Kom í ljós að miðað við tímann sem við vorum í burtu. Skipti litlu hvort við tækjum rútu eða færum á bílnum. Það var skafið og haldið af stað.

Við höfðum góðan tíma. Gátum tekið því rólega á flugvellinum. Allt gekk eins og í sögu og við rákumst meira að segja á félaga á flugvellinum. Við vorum svo komin til Parísar rétt rúmlega 1 í dag. Hugmyndin hafði verið að skilja farangurinn eftir á flugvellinum. En svoleiðis er víst ekkert lengur í gangi. Okkur var bent á Garre du Nord. Lestarstöðina í París. Þangað komum við okkur. Hægt og rólega. Það tók okkur næstum 3 klukkutíma að komast með farangurinn í geymslu. Svo það var langt liðið á daginn. Ég hafði verið í sambandi við vinnufélaga og við heilsuðum upp á þá. Í bara þessu fína vor veðri hér í París. En hugmyndir um rölt og afslöppun í París voru eiginlega orðnar að engu. Þetta varð dagurinn sem við þvældumst með farangur.

Samt var kíkt í nokkrar búðir. Hér eru vor útsölur komnar í gang. Greinilega hægt að fata sig upp fyrir íslenska sumarið. Einhvern tíma heyrði ég það slúður. Að íslensk sumarföt. Væru raunar bara vetrartíska frá Evrópu. Innkaupastjórar verslana á Íslandi færu sem sagt og keyptu það sem ekki seldist. Ekki svo viss um að þetta eigi við í dag. En það er samt umhugsunarvert. Hversu mikið af því sem við köllum sumarfatnað. Er alls ekkert í stíl við það sem kallast sumarföt hér. Annars er vorið rétt að gægjast hingað. Fólkið greinilega klætt eins og það sé ennþá vetur.

Ummæli

Vinsælar færslur